Verkefnastofa KÍ starfa

Um verkefnið

Hér er að finna upplýsingar um virðismatsvegferð KÍ.

Í innanhússtillögu ríkissáttasemjara sem undirrituð var þann 25. febrúar 2025 var ákveðið að fara í svokallaða virðismatsvegferð. Í því felst meðal annars að aðilar vinni í sameiningu að gerð virðismatskerfis sem ætlað er að skapa forsendur fyrir hlutlægu og málefnalegu mati á virði starfa kennara.

Byggt á því mati fari fram mat á störfum félagsfólks KÍ og samanburðarstörfum sem aðilar komi sér saman um, í þeim tilgangi að jafna laun, vinnufyrirkomulag og kjör kennara við aðra sérfræðinga sem starfa á opinberum og almennum vinnumarkaði.

Verkefninu er skipt í fjóra verkhluta; undirbúning, starfagreiningar, þróun kerfis og mat starfa. Hverjum verkhluta er svo skipt upp í smærri verkþætti.

Áætlunin er sett fram með fyrirvara um breytingar en gert er ráð fyrir að hún sé lifandi skjal og verði reglulega endurskoðuð á verkefnatímanum.

Hér að neðan má nálgast verkefnaáætlunina í heild sinni.

Verkefnaáætlun FSKÍ

Eitt af fyrstu verkum faglegrar stjórnar var að vinna í sameiningu að starfsreglum sem gilda fyrir verkefnið og þá aðila sem að því koma. Starfsreglur eru í raun skilmálar vinnunnar sem innihalda meðal annars lýsingu á hlutverkum, ábyrgð, tímalínu og ákvarðanatökuferli. Starfsreglurnar samræma vinnu faglegrar stjórnar og tryggja skuldbindingu aðila hennar. Þær snerta til dæmis á því hvaða verkefni eigi að vinna, hvernig aðilar ætla að vinna saman, hvernig þeir ætli að eiga í samskiptum, hvernig leyst verði úr ágreiningi og ferli vinnunnar sjálfrar.

Hér að neðan má lesa starfsreglur FSKÍ í heild sinni

Starfsreglur FSKÍ

Stöðuskýrslur eru gerðar við lok hvers verkhluta. Þær má finna hér fyrir neðan.

Stöðuskýrsla FSKÍ - ágúst 2026
Stöðuskýrsla FSKÍ - október 2025

Ertu að leita að einhverju sérstöku?

Ekki hika við að hafa samband!