Virðismatsvegferðin
Í innanhústillögu ríkissáttasemjara sem var undirrituð 25. febrúar 2025 var ákveðið að hefja svokallaða virðismatsvegferð. Í virðismatsvegferðinni felst m.a. að aðilar verkefnisins koma að mótun og gerð virðismatskerfis fyrir KÍ störf. Virðismatskerfinu er ætlað að skapa forsendur fyrir málefnalegu og hlutlausu mati á störfum kennara og greina þætti sem áður kunna að hafa verið vanmetnir.
Verkefninu er skipt í fjóra verkhluta; undirbúning, starfagreiningar, þróun kerfis og mat starfa. Þann 1. október 2026 verða forsendur virðismatsvegferðarinnar svo endurskoðaðar en þá mun liggja fyrir bráðabirgðamat valinna starfaprófíla með tilliti til virðismatskerfis og að teknu tilliti til grunnlaunasetningar.
Starfaprófíll er ítarleg lýsing á inntaki starfs og byggir á gagnreyndum upplýsingum sem eru notaðar til að draga fram upplýsingar sem er skipt niður eftir ákveðnum yfir- og undirflokkum. Starfaprófíll er ekki tæmandi lýsing á starfi og þeim verkefnum sem fylgja því en á að vera nógu lýsandi til að starfsfólk sjái starf sitt endurspeglast í prófílnum.
Fagleg stjórn
Mynduð var fagleg stjórn um þróun virðismatskerfis fyrir störf félagsfólks Kennarasambands Íslands (FSKÍ) og óskað eftir aðkomu Jafnlaunastofu að verkefninu. Jafnlaunastofa starfar fyrir faglega stjórn, vinnur undirbúningsvinnu og faglega vinnu fyrir stjórnina, en öll ákvarðanataka er í höndum faglegrar stjórnar.
Í FSKÍ sitja fulltrúar allra aðildarfélaga KÍ og opinberra launagreiðenda. Fulltrúarnir hafa jafnt vægi í allri vinnu stjórnarinnar. Í vinnu faglegrar stjórnar er áhersla lögð á samstarf aðila, gagnsæi og traust og ákvarðanir eru teknar með einhug. Fagleg stjórn tók til starfa í apríl 2025 og fundar að jafnaði tvisvar í mánuði. Í upphafi vinnunnar var unnið með praktísk mál, skipulag vinnunnar fram undan og að byggja góðan grunn fyrir samstarfið.
Spurningalisti um inntak starfa
Nú er komið að þeim tímapunkti þar sem verkefnið krefst virkrar þátttöku félagsfólks KÍ. Þann 25. febrúar 2026 var sendur út spurningalisti á þátttakendur sem valin voru í úrtak út frá völdum starfsheitum í félagi leikskólakennara, félagi grunnskólakennara, félagi framhaldsskólakennara og félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum. Þetta er fyrsta fyrirlögn spurningalistans og mun hann taka breytingum og þróast eftir því sem verkefninu vindur fram. Góð svörun við spurningalistanum er lykilatriði fyrir framgang verkefnisins, og þökkum við því félagsfólki sem hefur samþykkt að taka þátt og gefið sér tíma til að svara. Óskað verður eftir að aðrir starfahópar svari spurningalistanum þegar þar að kemur, í takt við ákvarðanir faglegrar stjórnar.
Tilgangur spurningalistans er að safna upplýsingum um inntak starfanna og munu niðurstöður hans nýtast við gerð starfaprófíla og þróun virðismatskerfis fyrir störf félagsfólks KÍ.
Næstu skref
Næsti hluti gagnaöflunar verður svo í formi rýnihópaviðtala þar sem unnt er að fá dýpri innsýn inn í störfin bæði frá starfsfólki og stjórnendum. Rýnihópaviðtölin verða nokkur talsins og verða þátttakendur í hverjum hópi líklegast á bilinu sex til tíu. Niðurstöður gagnaöflunar verða nýttar við þróun virðismatskerfis og við að greina inntak starfanna og móta drög að svokölluðum starfaprófílum.
Nánari upplýsingar um verkefnið hér á vefnum.
Reykjavík, 10.04.2026
Með kærri kveðju frá Faglegri stjórn um þróun virðismatskerfis fyrir KÍ störf

