Takk kærlega fyrir að bjóða þig fram til þátttöku í rýnihópum í tengslum við virðismatsvegferð KÍ. Þátttaka þín er mikilvægt innlegg í verkefnið.
Vinsamlega fylltu út skráninguna hér að neðan. Beðið er um tengiliðaupplýsingar og nokkrar bakgrunnsspurningar sem hjálpa okkur við að setja saman fjölbreytta og hentuga hópa. Þátttakendur verða valdir af handahófi úr hópi skráðra og haft verður samband við þau sem verða fyrir valinu.
Rýnihóparnir eru staðfundir á höfuðborgarsvæðinu. Þátttakendur af landsbyggðinni eru beðin að hafa samband við sitt stéttarfélag varðandi þátttöku í ferðakostnaði.
Viðtölin verða hljóðrituð í þeim tilgangi að vinna úr þeim niðurstöður. Allar upplýsingar verða meðhöndlaðar sem trúnaðarmál og niðurstöður verða settar fram á nafnlausum grunni.

