Verkefnastofa KÍ starfa

Spurt og svarað

Um spurningalistann

Hver er tilgangur spurningalistans?

Tilgangur spurningalistans er að safna upplýsingum um inntak valinna starfsheita og munu niðurstöður hans nýtast við gerð starfaprófíla og þróun virðismatskerfis fyrir störf félagsfólks KÍ.

Hvernig svara ég spurningalistanum?

Þú færð spurningalistann sendan í tölvupósti og hefur tvær vikur til að svara honum. Þú þarft ekki að svara öllum spurningunum í einu, þú getur vistað svörin þín og haldið áfram með spurningalistann þegar þér hentar.

Í hvað verða svörin mín notuð?

Svörin verða greind og notuð ásamt öðrum gögnum (t.d. starfslýsingum) til að dýpka þekkingu á inntaki starfa félagsfólks KÍ, móta starfaprófíla og þróa virðismatskerfi til að stuðla að því að störfin séu metin á hlutlægan og málefnalegan hátt.

Hvað tekur langan tíma að svara spurningalistanum?

Við gerum ráð fyrir að það taki um það bil 90 mínútur að svara spurningalistanum en það getur verið einstaklingsbundið hvað það tekur langan tíma.

Hver hefur aðgang að svörunum mínum?

Einungis starfsfólk verkefnastofu KÍ starfa á Jafnlaunastofu hefur aðgang að svörum þínum. Öryggi gagna er tryggt með viðeigandi tæknilegum og skipulagslegum aðgerðum, þar á meðal með aðgangsstýringu og dulkóðun svara. Engar upplýsingar sem hægt er að rekja til einstaklinga verða birtar eða miðlað til þriðja aðila.

Fær stjórnandinn minn aðgang að svörum mínum?

Nei, stjórnandinn þinn mun ekki hafa aðgang að svörunum þínum.

Hvers vegna var ég valin/nn/ð til að svara spurningalistanum?

Þú varst valin/nn/ð í úrtak út frá starfsheitinu sem þú ert í. Til að þjóna markmiði verkefnisins þótti mikilvægt að fá fjölbreyttan hóp til að svara spurningalistanum. Við öflun þátttakenda fyrir spurningalistann voru því notuð tvenns konar úrtök, annars vegar slembiúrtak og hins vegar tilgangsúrtak. Allir þátttakendur eru með upplýsingar um úrtakið sem þau voru valin í. Slembiúrtakið fór fram með þeim hætti að ákveðinn fjöldi þátttakenda var valinn tilviljanakennt út frá launaskrá. Tilgangsúrtak fór þannig fram að viðeigandi aðildarfélög KÍ tilnefndu ákveðinn fjölda þátttakenda til að svara spurningalistanum.

Er þátttaka skylda?

Nei, þátttaka er valkvæð og þú mátt hætta þátttöku hvenær sem er, án skýringa.

Get ég hætt þátttöku ef ég byrja?

Já, þú getur alltaf dregið samþykki þitt til baka og hætt þátttöku í spurningalistanum.

Er verið að meta mig persónulega?

Nei, ekki er um að ræða mat á frammistöðu eða eiginleikum starfsfólks heldur er einungis verið að afla upplýsinga um störfin sjálf, hvað í þeim felst og hvaða kröfur þau gera, óháð því hver það er sem sinnir starfinu.

Hvernig er með persónuvernd?

Könnunin og úrvinnsla hennar er gerð í samræmi við lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga nr. 90/2018. Spurt er um almennar persónuupplýsingar eins og kyn og aldur og upplýsingar um starf og vinnustað, eins og starfsheiti og nemendafjölda í skóla. Einungis er spurt um ofangreint í þeim tilgangi að greina störf, starfsaðstæður og álagstengda þætti.

Hvað er spurt um í spurningalistanum?

Spurningalistanum er skipt upp í fimm kafla og hver þeirra inniheldur spurningar flokkaðar saman í undirflokka. Kaflarnir fimm innihalda spurningar sem afla upplýsinga um þá þekkingu og færni sem starfið gerir kröfu um, þá ábyrgð sem felst í starfinu, því álagi sem því fylgir og vinnuumhverfinu sem það er unnið í. Að lokum eru spurningar um bakgrunn þátttakenda, eins og kyn, aldur og menntun og um skólann sem þú starfar í, t.d. stærð skóla og staðsetningu.

Af hverju skiptir þátttaka mín máli?

Til að þróa virðismatskerfi sem tekur utan um störf félagsfólks KÍ þurfum við að kynnast störfunum betur. Með svörum þínum, og annarra þátttakenda, koma fram fjölbreyttar upplýsingar sem sjást ekki alltaf í formlegum starfslýsingum, því enginn þekkir störfin betur en þau sem sinna þeim daglega.

Hvað er virðismatsvegferð KÍ?

Í innanhústillögu ríkissáttasemjara sem var undirrituð þann 25. febrúar 2025 var ákveðið að fara í svokallaða virðismatsvegferð. Í því felst meðal annars að aðilar vinni í sameiningu að gerð virðismatskerfis sem ætlað er að skapa forsendur fyrir hlutlægu og málefnalegu mati á virði starfa félagsfólk KÍ. Byggt á því mati fari fram mat á störfunum sem og samanburðarstörfum sem aðilar komi sér saman um, í þeim tilgangi að jafna laun, vinnufyrirkomulag og kjör kennara við aðra sérfræðinga sem starfa á opinberum og almennum vinnumarkaði.

Hvernig skrái ég mig í happdrættið?

Þegar þú hefur lokið við að svara spurningalistanum muntu fá sendan sjálfvirkan tölvupóst frá kerfinu þar sem þér er þakkað fyrir þátttökuna og boðið að skrá þig í happdrættið með því að fylla út form með nafni, símanúmeri og netfangi. Aðeins þau sem klára að svara spurningalistanum hafa tök á því að skrá sig í happdrættið og er skráning í það ekki tengd svörum þátttakenda.

Á hvaða tungumálum er spurningalistinn?

Spurningalistinn er eingöngu á íslensku í þessari fyrstu fyrirlögn en verður síðar meir þýddur yfir á ensku.

Hvað er virðismatskerfi?

Virðismatskerfi í þágu launajafnréttis er kerfisbundin nálgun til að tryggja að störf séu metin á málefnalegan og hlutlægan hátt. Þetta er gert með því að horfa á raunverulegt inntak starfa og byggja á faglegum gögnum. Útkoman er öflugt tæki til að tryggja jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf, leiðrétta kerfisbundnar skekkjur og byggja upp traust, gagnsæi og jafnræði á vinnumarkaði. Virðismatskerfi nýtast sérstaklega við að greina þætti sem oft eru vanmetnir, svo sem tilfinningalegt álag, samskiptakröfur eða ábyrgð á velferð annarra.

Hefur þetta áhrif á launin mín?

Spurningalistinn er hluti af þróunarverkefni sem samþykkt var að fara í, sbr. innanhústillögu ríkissáttasemjara, en aðilar munu alltaf þurfa að semja formlega um upptöku og notkun virðismatskerfisins í kjarasamningum.

Hvert get ég leitað ef ég hef frekari spurningar?

Þér er ætíð velkomið að hafa samband við verkefnastofu KÍ starfa hjá Jafnlaunastofu í síma 415-4990 eða með tölvupósti á netfangið virdismat.ki@jafnlaunastofa.is. Við hvetjum þig einnig til að hafa samband ef einhverjar spurningar í spurningalistanum eru óljósar.

Ertu að leita að einhverju sérstöku?

Ekki hika við að hafa samband!